☀️ Vissir þú… að sólarsellur bjóða upp á miklu meira en bara sparnað?
Share
⚡ Vissir þú… að með birtusellum verður þú þinn eigin orkuframleiðandi?
Þú þarft ekki að treysta á verðbreytingar á rafmagni eða aflgjafa – þú stjórnar þinni eigin orku.
🌍 Vissir þú… að birtusellur lækka kolefnissporin þín um þúsundir kg á ári?
Þetta jafngildir því að planta tugi trjáa – á hverju ári! Það er eitt umhverfisvænasta skref sem þú getur tekið...tala nú ekki um ef notast er við jarðefnaeldsneyti til orkuframleiðslu.
🌤️ Vissir þú… að birtusellur virka líka þegar skýjað er?
Þær safna birtu, ekki bara í beinni sól, heldur í hvaða birtu sem er – þannig að á Íslandi nýtast þær mjög vel yfir sumarið og alla bjarta daga.
🔋 Vissir þú… að með orkugeymslu getur þú notað orkuna þína líka á kvöldin og í rafmagnsleysi á stöðum sem búa ekki við fullt orkuöryggi?
Það eykur öryggi – sérstaklega í sumarhúsum eða öðrum húsum eða í dreifbýli þar sem straumleysi getur haft meiri áhrif.
🏘️ Vissir þú… að þú getur tengt birtuorkukerfi við netið og í náinni framtíð selt umframorku aftur inn á kerfið (netgjaldaskipti)?
Í sumum löndum fær fólk greitt fyrir þá orku sem það nýtir ekki sjálft – og við viljum sjá sömu lausnir verða að veruleika hér.
📦 Vissir þú… að viðhald á sólarsellum er nánast ekkert?
Engir hreyfanlegir hlutir, enginn hávaði og ekkert vesen. Þær eru hljóðlausar, sjálfbærar og endast í 25–30 ár, og eru með 25 ára ábyrgð!
🧊 Vissir þú… að sólarsellur virka betur í köldu veðri en of heitu?
Hár hiti dregur úr skilvirkni – en kaldir, bjartir dagar á Íslandi eru frábærir fyrir orkusöfnun.
🛡️ Vissir þú… að sólarkerfi styrkja orkuöryggi samfélaga?
Þegar fleiri framleiða sína orku dreifist álagið og hætta á straumleysi minnkar – sérstaklega á háálagstímum.