Sigenergy – Snjallar orkugeymslur og heildarlausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Sigenergy - Ekki bara varaafl!
Sigenergy er ný kynslóð orkulausna þar sem orkugeymsla, "netið", (netið - vatnsafl - ljósavél og annar orkugjafi) PV/birtuorkukerfi, snjöll stýring og varaafl vinna saman í einni samræmdri heild. Lausnin gefur heimilum, býlum, fyrirtækjum og iðnaði, meiri stjórn á eigin orku, betri nýtingu á eigin framleiðslu og sterkari grunn til framtíðar.
Í stað þess að setja saman mörg ólík tæki frá mismunandi framleiðendum býður Sigenergy upp á vistkerfi þar sem allt vinnur saman. Það skilar sér í einfaldari uppsetningu, skýrari stjórnun og lausn sem er auðveldari í rekstri til lengri tíma.
Helstu kostir Sigenergy
- Meira en varaafl, samþætt orkukerfi í einni lausn
- 0 msek skipti yfir á varaafl þegar mest á reynir
- 5-í-1 lausn með snjallri orkustýringu
- Stækkanlegt bæði í afli og orkugeymslu
- Frá nettengdum kerfum upp í sjálfstæð off-grid og micro grid lausnir
- LFP rafhlöður með 10.000 hleðsluhringjum
- IP66-vörn fyrir krefjandi aðstæður - Getur verið utandyra
- Gervigreind með mySigen app og Sigen Cloud fyrir skýra yfirsýn
- AI-studd hámörkun á orkunotkun og kostnaði
- EV / V2X tilbúið fyrir orkukerfi framtíðarinnar
- Einfaldari uppsetning sem sparar tíma og kostnað
- Enginn viðhaldskostnaður
Tvær lykillausnir
SigenStor
Fyrir heimili, býli, bústaði og smærri fyrirtæki
SigenStor er samþætt 5-í-1 lausn þar sem inverter, rafhlaða, battery PCS, orkustýring og möguleg EV DC hleðslueining vinna saman í einu kerfi. Lausnin minnkar flækjustig, einfaldar uppsetningu og er auðveld í stækkun.

SigenStack
Fyrir stærri fyrirtæki og iðnað
SigenStack er stækkanleg orkugeymslulausn fyrir stærri verkefni þar sem markmiðið er að bæta rekstraröryggi, auka nýtingu eigin raforku, lækka toppálag / peak saving og byggja upp lausn í áföngum eftir þörfum.
Sigenergy Smart Home
Sigenergy Smart Home sameinar framleiðslu, geymslu, stýringu og varaafl í einu snjöllu heimiliskerfi. Lausnin hentar þeim sem vilja nýta eigin raforku betur, hafa skýra yfirsýn yfir notkun og stýra hvenær orka er notuð, geymd eða keypt.
Helstu kostir Smart Home:
- skýr yfirsýn yfir framleiðslu, notkun og geymslu
- snjöll orkustýring sem getur hámarkað nýtingu
- varaafl sem eykur öryggi þegar truflanir verða
- möguleiki á stækkun eftir því sem þarfir breytast
- undirbúningur fyrir rafbílahleðslu og orkukerfi framtíðarinnar
Fyrir hvern hentar Sigenergy?
Sigenergy hentar þeim sem vilja meiri stjórn, meira öryggi og betri nýtingu á eigin orku.
- Heimili sem vilja lægri orkukostnað og meiri yfirsýn
- Bústaði sem vilja meira sjálfstæði og aukið öryggi
- Fyrirtæki og býli sem vilja sterkari orkugrunn og meiri sveigjanleika
- Stærri Fyrirtæki og iðnaður þar sem mikilvægt er að geta byggt lausn upp í áföngum
Af hverju velja Sigenergy?
Sigenergy sameinar það sem skiptir mestu máli í nútíma orkukerfum: framleiðslu, orkugeymslu, stýringu, varaafl og skýra yfirsýn. Fyrir þau sem vilja meira virði úr hverri kílóvattstund, meiri sjálfsnýtingu, orkuöryggi og lausn sem getur þróast með þörfum, er Sigenergy sterkur kostur.
Við hjálpum þér að finna réttu lausnina
Ókeypis ráðgjöf - við setjumst niður með þér og förum í gegnum þarfir þínar.