Sendingarskilmálar
Við hjá Ljosorka.is leggjum áherslu á örugga og faglega afhendingu á okkar vörum.
- Afhendingartími: Flestar pantanir, þar á meðal sólarorkukerfi og tengdar vörur, eru afhentar innan **3–4 vikna** frá staðfestingu pöntunar, nema annað sé tekið fram. Við látum vita ef framleiðsla eða sérpöntun krefst lengri tíma.
- Sendingaraðilar: Við notum trausta flutningsaðila eins og Samskip, Eimskip, Dropp, DHL, Íslandspóst eða aðra viðurkennda samstarfsaðila, allt eftir eðli og stærð vörunnar.
- Afhendingarkostnaður: Sendingarkostnaður erlendis frá er innifalinn í verði - sendingarkostnaður innanlands reiknast í greiðsluferli og birtist áður en pöntun er greidd. Frí sending getur átt við ef slíkt er sérstaklega tekið fram, afsláttartilboð notað eða aðrar ástæður.
- Móttaka: Viðskiptavinur ber ábyrgð á að veita rétt heimilisfang og taka við sendingunni á tilgreindum stað. Ef varan er stór (t.d. kerfi með sólarplötum og spennubreyti), getur flutningsaðili haft samband fyrir afhendingu.
- Skaðar í flutningi: Ef sending berst skemmd eða röng, skal tilkynna það innan 24 klst. frá móttöku á ljosorka@ljosorka.is með myndum og upplýsingum. Við leysum málið í samvinnu við flutningsaðila.
- Afhending erlendis: Við sendum ekki sjálfgefið utan Íslands. Fyrir erlend kaup skaltu hafa samband við okkur til að kanna sendingarmöguleika.