Rafhitun á Íslandi – og hvernig þú getur lækkað orkukostnaðinn
Share
Á flestum stöðum á Íslandi er heitt vatn úr jörðu notað til að hita upp hús, en enn eru til svæði þar sem fólk treystir á rafmagn til húshitunar. Þetta á einkum við um svokölluð köld svæði – þar sem jarðhiti er ekki aðgengilegur eða hagkvæmur til flutnings.
Hverjir nota rafhitun?
Um 10 % íslenskra heimila nota rafhitun að hluta eða öllu leyti, sem samsvarar um 15.000 heimilum víðsvegar um landið. Þetta á einkum við á stöðum eins og:
-
Vestfjörðum
-
Austfjörðum
-
Strjálbýlum svæðum þar sem hitaveita nær ekki
Rafhitun er oft niðurgreidd af ríkinu, en samt sem áður getur hún verið dýrari og orkufrekari en aðrar lausnir.
Hvað er vandamálið við rafhitun?
Þó rafhitun sé hrein og auðveld í notkun, þá er hún:
-
Dýrari en jarðhiti og nýstárlegar lausnir eins og birtuorkukerfi og varmadælur
-
Minna umhverfisvæn, sérstaklega ef rafmagnið kemur ekki úr endurnýjanlegum uppsprettum
-
Óhagkvæm til framtíðar ef rafmagnsverð hækkar – sem það gerir nú þegar víða og á eftir að gera enn frekar í náinni framtíð
Hvernig getur þú lækkað kostnaðinn?
Það eru til lausnir sem hjálpa fólki að draga úr rafhitun – og í mörgum tilfellum hægt að fá styrk frá ríkinu til að auðvelda umskiptin. Með því að:
-
Setja upp birtuorkukerfi (sólarsellur)
-
Taka í notkun varmadælu
-
Uppfæra einangrun eða hitakerfi
…geturðu lækkað orkukostnaðinn verulega – og stundum framleitt þitt eigið rafmagn sem er margfalt ódýrara en það sem þú kaupir af veitunni.
Í boði eru styrkir – og við hjálpum þér með umsóknina
Ef þú notar niðurgreidda rafhitun geturðu sótt um eingreiðslustyrk frá Orkustofnun. Styrkurinn nær yfir helming efniskostnaðar (án vsk) við umhverfisvæna orkuöflun, allt að 1.496.000 kr. Umsóknin er einföld og við hjá Ljósorku bjóðum alla aðstoð sem þarf við að:
-
Finna rétta lausn fyrir þig
-
Áætla sparnað
-
Undirbúa umsóknina
Sjá nánar: 👉 orkustofnun.is/orkuskipti/eingreidslur
Lokaorð
Það borgar sig að skoða hvað birtuorka eða önnur orkusparandi lausn gæti gert fyrir heimilið þitt. Ef þú vilt:
-
Minnka orkureikningana
-
Auka sjálfbærni
-
Og nýta þér styrkinn sem er í boði
…þá hvetjum við þig til að hafa samband. Við skoðum þetta saman – án skuldbindinga – og hjálpum þér að breyta birtu í rafmagn.