Skilaréttur
Skilaréttur
1. Skilaréttur – netverslun
Viðskiptavinir sem kaupa vörur í gegnum vefverslun okkar eiga rétt á að hætta við kaupin innan 14 daga frá móttöku, samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Varan skal vera ónotuð, í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi. Við áskiljum okkur rétt til að draga frá endurgreiðslu ef vara hefur verið skemmd eða umbúðir opnaðar þannig að verðmæti hennar rýrnar.
2. Skil á sérpöntunum eða uppsettri vöru
Sérpantaðar vörur eða tæki sem hafa verið uppsett falla ekki undir hefðbundinn 14 daga skilarétt nema galli sé til staðar eða um sé að ræða ranga vöru.
3. Endurgreiðslur
Endurgreiðsla fer fram innan 14 daga frá því að við fáum vöruna í skil og staðfestum ástand hennar. Endurgreitt er á sama greiðslumáta og notaður var við kaup.
4. Hvernig skal skila vöru
Vinsamlegast hafðu samband við okkur á ljosorka@ljosorka.is áður en vara er send eða skilað. Við leiðbeinum um næstu skref.